sunnudagurinn 20. maí 2012
Notendanafn: Lykilorđ:
Mynd augnabliksins
« Maí 2012 »
SMÞMFFL
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031 
Heimsóknir
Í dag: 1
Samtals: 642912
Póstlistaskráning
Upplýsingar um póstlistann

Netfang:

Afskrá

Samstarfsađilar

Icelandair
Stíll
Eimskip
Roger Clark
Ljósgjafinn
Ólafshús
Stefna

Vaxtarćktin
Formúla
Kynning

 

 

Þökkum samstarf og stuðning á liðnum árum.


Team ICE Imprezan er til sölu. Tilboð óskast 

Upplýsingar um bílinn er að finna undir flipanum "Um liðið" og í fjölmörgum blaðagreinum sem m.a. er að finna undir flipanum "Tímarit og blöð".  Besti árangur í kvartmílu er 9,485 sec á 151,06 mílum (1/8 míla á 6,1899 sec á 122,46 mílum). Mesti hraði á 1,25 mílu er 320,4 km. Upplýsingar veita einnig Halldór Jónsson, GSM 8960381 og email: halldor.jonsson@simnet.is og Matt Clark hjá Roger Clark Motorsport í Englandi.

Bíllinn er í Englandi og afhendist þar.

Tilboð sendist á halldor.jonsson@simnet.is

 

 

Ítarleg umfjöllun um Team ICE 555 Imprezuna í Redline:

"The ICE Warrior: 

0-151 mph in 9,4 sec., ..that´s faster than a Bugatti Veyron"

 

 

BESTI TÍMINN Á SANTA POD 3. ÁGÚST 2008:

9,485 @ 151,06 MÍLU

 

 4. besti tími í kvartmílunni á Ten Of The Best, (TOTB7) 27. júlí 2008: 9,85 sek.

 

Nýjustu Fréttirnar hér
Nýjustu myndirnar hér 

Sjáið myndbandið frá keppninni á Ten Of The Best árið 2006 (107 MB)


Team ICE 555 Imprezan hefur fengið andlitslyftingu og verið máluð í hvítum lit fyrir keppnir ársins 2008. Á Ten Of The Best 7 á Elvington brautinni náðum við fjórða besta tímanum í kvartmílunni, 9,85 sek. Enn betri árangur náðist í keppninni Ultimate Street cars (USC) sem fram fór á Santa Pod kvartmílubrautinni í Englandi. Í öllum ferðum náðist tími undir 10 sek. og besti tíminn sem náðist var 9,485 sek og endahraðinn var 151,06 míla. Með 8 til 10 mílna meiri endahraða er raunhæft að ná tímanum undir 9 sekúndur.
Ekkert var keppt á árinu 2007.
Árangur liðsins á árinu 2006 var góður, þó vonir hafi staðið til þess að bæta tímann í kvartmílunni.  Það tókst ekki, en hins vegar náðist mjög góður árangur á TOTB5 í hámarkshraða (mælt á 1,25 mílu), en þar náðist 199,1 mílu hraði eða 320,4 km.  Var það 2. - 3. mesti hraði sem náðist.  Það er nokkuð gott á bíl sem er með 2ja lítra vél og er 1280 kg auk ökumanns eða um 1370 kg. Í kvartmílunni keppti hann til úrslita, en tapaði á rauðu ljósi; þar var kúplingin að stríða Gulla; sleit ekki á ráslínu.  Auk þess gekk Gulla vel í brautinni og sýndi eftirtektarverðan akstur. Í stigakeppninni varð hann númer 4 af öllum keppendum.
  
Á þessari heimasíðu er að finna upplýsingar um keppnisliðið Team ICE.  Frá árinu 2001 hefur liðið tekið þátt í spyrnukeppnum á Íslandi og frá árinu 2004 einnig í Bretlandi.  Árangurinn hefur verið góður.  Keppnisbíllinn hefur verið á mörgum bílasýningum og fjallað hefur verið um ökumann og bíl í blöðum og tímaritum á Íslandi og í Bretlandi.  Í byrjun var keppnisliðið kallað Team555 en frá árinu 2005 er heiti þess Team ICE. 

Á heimasíðunni eru fréttir af liðinu, keppnum, árangri, sýningum og öllu því sem talið er fréttnæmt og upplýsandi.  Upplýsingar eru um keppnisbílinn og ökumann.  Myndir af bílnum er hægt að skoða eða sækja og sama gildir um  myndbönd frá spyrnum í keppnum eða á æfingum.   Umfjöllun í tímaritum og blöðum um bílinn og árangur Gulla er hægt að skoða hér.  Hér er einnig að finna skrá yfir áhugaverðar heimasíður, þar sem fjallað er um bíla, akstursíþróttir o.fl. áhugavert.

Nöfn og merki samstarfsaðila eru á þessari heimasíðu með beinni tenginu á heimasíðu viðkomandi aðila.
Fyrir þá sem vilja er boðið upp á að skrá sig á póstlista heimasíðunnar og fá þeir þá  sendar upplýsingar þegar nýjar fréttir eða upplýsingar koma á síðuna.

Allar ábendingar um það sem betur mætti fara og/eða um  það sem bæta mætti við á heimasíðuna eru vel þegnar og verða skoðaðar.

Notkun á efni af þessari heimasíðu er heimil, en æskilegt að geta um uppruna.
Það er von okkar að heimasíðan sé bæði upplýsandi og fræðandi um þau viðfangsefni sem Team ICE tekur þátt í. 

Nýjustu fréttir
Almennt - 07.07.2010 08:00 - 775 lestrar
Team Ice Imprezan til sölu
Team Ice Imprezan til sölu
Team Ice Imprezan er til sölu. Sjá upplýsingar á forsíðu.
Almennt - 09.10.2009 08:00 - 952 lestrar
Ný umfjöllum og nýjar myndir í Banzai tímaritinu
Ný umfjöllum og nýjar myndir í Banzai tímaritinu

Enn og aftur fjallar tímaritið Banzai um Team Ice Impresuna. Sjáið nýjar og flottar myndir og umfjöllun um bíl og búnað.

http://www.teamice.is/?mod=media&mod2=view&view=media&album=42


Almennt - 09.10.2009 08:00 - 909 lestrar
Umfjöllun og skemmtilegar myndir í Total Impreza tímaritinu
Umfjöllun og skemmtilegar myndir í Total Impreza tímaritinu

Myndir og umfjöllum um bílinn og búnað. 

http://www.teamice.is/?mod=media&mod2=view&view=media&album=41


Almennt - 03.12.2008 08:00 - 1400 lestrar
Ítarleg umfjöllun um Team ICE 555 Imprezuna í tímaritinu Redline í desember 2008. ...\
Ítarleg umfjöllun um Team ICE 555 Imprezuna í tímaritinu Redline í desember 2008. ...\
Team ICE 555 Imprezan prýðir forsíðu tímaritsins Redline í desember 2008. Ítarlega er fjallað um bílinn og búnað hans.......
Almennt - 07.10.2008 08:00 - 1231 lestrar
Heimasíđan ţriggja ára
Heimasíða Team ICE  www.teamice.is  var opnuð fyrir liðlega þremur árum. Frá þeim tíma eru heimsóknir á síðuna.....
Skođa allar fréttir